
| Stríð á Himnum ©11. janúar Asher Intrater Opinberunarbókin lýsir andlegu stríði á endatímunum. Stríði á milli engla sem eru trúir Guði og engla sem berjast gegn Guði (djöflar). Opinberunarbókin 12:7 – “Þá hófst stríð á himni: Mikael og englar hans fóru að berjast við drekann. Drekinn barðist og englar hans.” Barátta okkar er ekki við hold og blóð, heldur við andaverur illskunnar (Efesusbréfið 6:11-13; 2. Korintubréf 10:3-5) Í núverandi baráttu á Gaza, er stríð okkar ekki gegn íbúum Gaza, heldur anda Jihad, hryðjuverka, anti-Krists og gyðingahaturs, sem hefur náð yfirhöndinni þar. Vegna þess að þetta stríð er andlegt, þá notar það ekki eingöngu skriðdreka og eldflaugar, heldur einnig heimsálitið og fjölmiðla. Ísrael er í mjög sérkennilegri stöðu, þar sem annars vegar er verið að berjast gegn Jihad öfgafullra íslamista innan Hamas og Hisbolla og hins vegar, frjálslyndum vinstrisinnuðum húmanistum í fjölmiðlum og innan Sameinuðu Þjóðanna. Hermennirnir þurfa mikið hugrekki til að berjast við hryðjuverkamenn, samhliða því að sýna heilindi og þolinmæði við að starfa samkvæmt ströngustu reglum siðferðislegs stríðs. Sérhvert eldflaugaskot er tekið upp á myndavél frá flugvél eða þyrlu, til að sanna og staðfesta skotmarkið. Enginn her í allri mannkynssögunni, hefur tekið upp svona varúðarráðstafanir eins og Ísraelsher gerir núna í þessu stríði. Ástæðan fyrir því að svo margir almennir borgarar eru særðir, er vegna þess að það hefur verið logið að þeim, Hamas hefur logið að þeim, þannig að fólkið er gert að mannlegum skjöldum. Myndbandsupptökur úr flugstjórnarklefum Ísraelshers, sýna að Hamas er að skjóta eldflaugum frá skólum, heimilum og moskum. Í Daníelsbók, kafla 10, þá fastar spámaðurinn í þrjár vikur. Dýrðarengill frá Drottni (Yeshua í mynd sinni áður en hann fæddist hér á jörð) birtist Daníel. (Daníel 10:5-6), og gefur honum opinberun. “Og nú er ég kominn til að fræða þig á því, sem fram við þjóð þína mun koma á hinum síðustu tímum, því að enn á sýnin við þá daga.” – Daníelsbók 10:14. Opinberunin var um það sem koma mun yfir Ísraelsþjóðina á endatímum, fjarlægt þeim tíma sem Daníel lifði. Öll opinberun varðandi endatímana er tengd Ísrael. Og tengist stríði. Í þessari sýn, þá segir Himneski Sendiboðin honum aðstæður stríðsins. “Þá sagði hann: Veistu, hvers vegna ég er til þín kominn? En nú verð ég að snúa aftur til þess að berjast við verndarengil Persíu, og þegar ég fer af stað, sjá, þá kemur verndarengill Grikklands.” – Daníelsbók 10:20. Í dag þá er Persía, Íran. Íran er aðal uppspretta fjármagns til Hamas og Hisbolla. Það var í Grikklandi sem veraldlegur húmanismi fæddist, sami húmanismi og finnst í fjölmiðlum og Sameinuðu Þjóðunum í dag. Engill Drottins barðist gegn þessum tveimur öflum, á sama hátt og Ísrael er að berjast gegn þeim í dag. “Þó vil ég gjöra þér kunnugt, hvað skrifað er í bók sannleikans, þótt enginn veiti mér lið móti þeim, nema Mikael, verndarengill yðar. – Daníelsbók 10:21. Það var enginn annar þjóðarengill sem barðist með Yeshua gegn þessum illu öflum, nema Mikael, vegna þess að það var enginn önnur þjóð en Ísrael sem var tilbúin til að berjast gegn þeim. Allt þar til í þessari viku, hafa aðeins Bandaríkin ávallt stutt Ísrael innan Sameinuðu Þjóðanna. En í þessari viku, þegar öryggisráðið ályktaði, sátu Bandaríkin hjá. Mun einhver standa með Ísrael og Engli Drottins, gegn öflum veraldlegs húmanisma og Jihad íslamista á þessum endatímum? Fyrir mörgum árum, í kringum 1980, þá tók ég ljósrit af öllum köflum Biblíunnar sem fjalla um endatímana og fór yfir þá aftur og aftur, þar til ég fór að skilja þá. Ég komst að nokkrum einföldum niðurstöðum:
Opinberunarbókin 19, lýsir því þegar Yeshua kemur frá himnum, leiðir herfylkingu englanna til að refsa þjóðum jarðarinnar. Sakaría 14 lýsir þjóðunum sem koma gegn Ísrael í stríð, og Drottinn kemur til að berjast gegn þeim. Þessi hluti Sakaría skýrir frá því fjórum (4) sinnum að allar þjóðir heims muni gera árás á Jerúsalem. Andleg barátta er líka stríð sannleikans gegn lyginni. Hvers vegna vilja þjóðir heims ekki heyra sannleikann? Hvers vegna gera þær sér ekki grein fyrir því að verið er að ljúga að þeim? Eftirfarandi sagði meðlimur Hamas, á Palestínska þinginu, Dr. Yunis al Astil, varðandi markmið öfgafullra Islamista: “Við munum sigra Róm. Og þar á eftir alla Evrópu. Og þá munum við leggja undir okkur Ameríku. (B. D. Yemini, Maariv Weekend, 9-1-2009)." Vinur okkar “F”, menntaskólakennari í Evrópu, hringdi í vikunni og sagði starfsfólki okkar frá því að sumir múslimskir nemendur hans, ógnuðu honum vegna þess að hann kenndi ekki gegn Ísrael. Alls staðar í heiminum, þar sem Múslimar fara með völd, þar er hver sá sem boðar fagnaðarerindið í hættu á að vera drepinn á staðnum. Þekktur staður í hadith sem öfgafullir Múslimar vitna í, talar um að tími endurreisnar muni ekki koma nema allir Gyðingar verði drepnir af Múslimum og sérhver steinn og hvert tré muni hrópa og segja frá að það sé Gyðingur falin þar á bak við. Það er hjartans þrá okkar að Gyðingar og Arabar, Ísraelar og Palestínumenn, öðlist eilíft líf, náð og fyrirgefningu hjá Yeshua (Jesú) Messiah. Eina leiðin fyrir Gaza að öðlast frelsi, bæði andlega og stjórnmálalega, er að Hamas missi völdin. Biðjum að Gaza verði frelsað. Aðeins ef Hamas fer, verður hægt að boða fagnaðarerindið þar. Aðeins þá verður möguleiki á frið. Biðjið fyrir starfi okkar í Ísrael, fyrir trúboði meðal innfæddra, fjölgun á messíönskum söfnuðum, Lærisveinaskólanum, spámannlegri lofgjörð og bænavakt og fjárhagslegri aðstoð fyrir þurfandi. |